Unnar Steinn: Fannst við betri allan leikinn
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram gerði 1-1 jafntefli við Víking Ólafsvík í 15. umferð Lengjudeildar Karla í Safamýri í kvöld. Framarar jöfnuðu metin með vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok. Unnar Steinn Ingvarsson var ekkert sérstaklega sáttur með eitt stig að leik loknum.
„Viljum þrjú stig og áttum þau skilið. Mér fannst við betri allan leikinn. Þeir áttu kannski tvö færi í þessum leik''.
Framarar halda toppsætinu eftir umferðina í kvöld en naga sig væntanlega í handabökin að hafa ekki tekið þrjú stig. Toppbaráttan í Lengjudeildinni er gríðarlega jöfn og spennandi en Unnar er handviss um að þetta styrki hans lið bara meira, þeir fari í alla leiki til að vinna þá.
Á dögunum var tilkynnt að Unnar hefði skrifað undir hjá Fylki og myndi ganga til liðs við þá eftir tímabilið. Unnar játar því að nokkur önnur lið hafi sýnt áhuga.
„Það voru alveg nokkur lið en Fylkir stóð upp úr fannst mér. Spennandi tímar þar og þjálfararnir flottir og þeir seldu mér þetta svolítið''.
Fram er í góðum séns á að komast upp í efstu deild. Unnar hugsar þó ekki mikið um það að mæta sínum gömlu félögum með Fylki á næsta ári og telur að það verði bara skemmtilegt.