Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. september 2021 22:31
Brynjar Ingi Erluson
Besiktas fær Pjanic frá Barcelona (Staðfest)
Miralem PJanic er kominn til Tyrklands
Miralem PJanic er kominn til Tyrklands
Mynd: Besiktas
Tyrkneska félagið Besiktas staðfesti í kvöld komu Miralem Pjanic frá Barcelona en hann gerir eins árs lánssamning.

Þessi 31 árs gamli miðjumaður kom til Barcelona frá Juventus á síðasta ári í skiptum fyrir brasilíska miðjumanninn Arthur.

Hann náði aldrei að sýna sitt besta í treyju Börsunga í þeim 30 leikjum sem hann spilaði fyrir félagið.

Bosníumaðurinn hefur reynt að fá sig lausan í sumar og tókst það í kvöld þegar hann skrifaði undir eins árs lánssamning við Besiktas í Tyrklandi.

Besiktas fær ekki forkaupsrétt á Pjanic en mun greiða 2,7 milljónir evra í launakostnað.
Athugasemdir
banner
banner
banner