Tottenham og Newcastle hafa áhuga á Grealish - Newcastle bjartsýnt á að fá Guehi - Elanga í læknisskoðun
   fös 02. október 2020 12:36
Elvar Geir Magnússon
Laugardalsvelli
Í beinni - Landsliðshópur Íslands opinberaður
Fréttamannafundur 13:15
Icelandair
Erik Hamren og Freyr Alexandersson.
Erik Hamren og Freyr Alexandersson.
Mynd: Fótbolti.net
Erik Hamren, landsliðsþjálfari Íslands, tilkynnir klukkan 13:15 í dag landsliðshópinn fyrir þrjá leiki sem eru framundan á Laugardalsvelli.

Fréttamannafundurinn verður í beinni Twitter-lýsingu og sýndur beint á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook

Ísland mætir Rúmeníu á fimmtudag í umspili um sæti á EM á næsta ári. Sigurliðið þar mætir Ungverjalandi eða Búlgaríu í næsta mánuði í úrslitaleik um sæti á EM.

Eftir leikinn við Rúmena mætir Ísland bæði Danmörku og Belgíu í Þjóðadeildinni en reikna má með að stór leikmannahópur verði tilkynntur í dag fyrir þessa þrjá leiki.

Leikirnir á Laugardalsvelli
Fimmtudagur 8. október - Rúmenía (Umspil)
Sunnudagur 11. október - Danmörk (Þjóðadeildin)
Miðvikudagur 14. október - Belgía (Þjóðadeildin)



Athugasemdir
banner