Albert orðaður við Aston Villa og Bournemouth

Albert kom að níu mörkum í Serie A á síðasta tímabili.

Mynd: EPA

Áhugi er á Alberti Guðmundssyni frá Englandi. Ítalski miðillinn FiorentinaUno greinir frá því að Aston Villa og Bournemouth hafi spurst fyrir um Albert.
Þá er jafnframt áhugi á Alberti innan Ítalíu en Atalanta er sagt hafa áhuga og er hann sömuleiðis á radar Juventus.

Ítalski miðillinn greinir jafnframt frá því að Fiorentina sé í leit að mögulegum arftaka Alberts skyldi hann fara. Þar er Daichi Kamada, leikmaður Crystal Palace, sagður ofarlega á blaði.
Samningur Alberts við Fiorentina rennur út eftir þrjú ár en hann gekk varanlega til liðs við félagið í fyrra eftir að hafa leikið með liðinu á láni þar áður.
Fyrrum heimsmeistarinn Fabio Grosso er tekinn við sem nýr stjóri Fiorentina. Stefano Piolo var rekinn frá Fiorentina eftir slaka byrjun á síðasta tímabili og stýrði Paolo Vanoli liðinu út tímabilið.