Gæti verið á förum frá Evrópumeisturunum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið AC Milan hefur lagt fram tilboð í Goncalo Ramos, framherja Evrópumeistara Paris Saint-Germain.
Ramos hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði PSG og er sagður opinn fyrir því að yfirgefa félagið í sumar.
Hann lék 45 leiki með PSG á síðasta tímabili og skoraði tólf mörk, en flestir þeirra komu af bekknum.
Samtals hefur Ramos spilað 131 leik fyrir PSG og komið að 65 mörkum frá því hann kom frá Benfica fyrir þremur árum.
Fabrizio Romano segir Milan hafa lagt fram tilboð í Ramos og að viðræður milli félaganna séu í fullum gangi. Jorge Mendes, umboðsmaður Ramos, ræðir einnig við Milan um kaup og kjör.
Milan er þó ekki eina félagið í baráttunni um hinn 25 ára gamla Ramos, að sögn Romano. Spánarmeistarar Barcelona eru einnig að skoða stöðuna á honum.