Newcastle hafnaði Tottenham í annað sinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Newcastle United hefur gert Tottenham skýrt grein fyrir því að ítalski miðjumaðurinn Sandro Tonali sé ekki falur fyrir minna en 100 milljónir punda. Þetta segir Craig Hope hjá Daily Mail.
Tottenham lagði á dögunum fram 75 milljóna punda tilboð í Sandro Tonali en Newcastle hafnaði því um hæl.
Lundúnafélagið kom ekki til baka með endurbætt tilboð heldur bað Newcastle um að endurskoða afstöðu sína til fyrra tilboðsins. Þeir svart-hvítu höfnuðu því aftur.
Tonali er sagður vera aðalskotmark Tottenham í sumarglugganum, en hann er jafnframt sagður opinn fyrir því að færa sig um set eftir þrjú tímabil hjá Newcastle.
Afstaða Newcastle er hins vegar skýr. Félagið vill fá tilboð upp á um 100 milljónir punda og hingað til hefur ekkert félag komist nálægt þeim verðmiða.
Manchester United hefur lengi haft áhuga á Tonali og það sama má segja um Arsenal og Manchester City.
Tonali, sem er 26 ára gamall, á fjögur ár eftir af samningi sínum við Newcastle og er á meðal launahæstu leikmanna félagsins. Það er því ljóst að það mun kosta sitt að næla í hann.