Real Madrid kaupir Paz aftur til að selja hann dýrara

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Real Madrid hefur tilkynnt Como að félagið ætli að virkja níu milljóna evra endurkaupsákvæði í samningi Nico Paz.
Como keypti Nico Paz frá Real Madrid árið 2024 fyrir aðeins sex milljónir evra.
Paz hefur skinið skært á Ítalíu síðan þá. Hann var meðal annars valinn í lið ársins á sínu fyrsta tímabili og besti miðjumaður ítölsku deildarinnar á síðustu leiktíð þegar Como komst í Meistaradeildina í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Real Madrid er með endurkaupsrétt á Paz og getur keypt hann til baka fyrir níu milljónir evra fyrir mánudag. Eftir það hækkar verðið um eina milljón evra.
Félagið hefur nú tilkynnt Como að það ætli að nýta sér endurkaupsréttinn og hefur jafnframt boðið ítalska félaginu að kaupa Paz aftur fyrir 60 milljónir evra.
Ef Como hafnar því mun Real Madrid selja Paz annað á hærra verði. Ítalíumeistarar Inter og félög úr ensku úrvalsdeildinni hafa sýnt honum mikinn áhuga síðustu vikur.
Paz, sem er 21 árs gamall, er þessa stundina með argentínska landsliðinu á HM. Hann lék síðustu tíu mínúturnar í 3-0 sigrinum á Alsír en kom ekkert við sögu í 2-0 sigrinum á Austurríki.