Anderson til Man City - Verður sá dýrasti í sögu deildarinnar

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester City náði í kvöld samkomulagi við Nottingham Forest um enska landsliðsmanninn Elliot Anderson. Man City mun greiða metfé fyrir Anderson eða um 130 milljónir punda.
Félögin hafa átt í viðræðum um Anderson síðustu vikur og unnið að því að finna verð sem bæði félög gætu sætt sig við.
Anderson hefur verið potturinn og pannan á miðsvæði Forest undanfarin tvö ár, eða síðan hann kom frá Newcastle United.
David Ornstein hjá Athletic og fleiri miðlar greina nú frá því að City hafi náð samkomulagi við Forest um Anderson. Kaupverðið er sagt vera 130 milljónir punda og með því slær City félagaskiptametið í ensku úrvalsdeildinni.
Fyrra metið átti Liverpool, sem keypti Alexander Isak fyrir 125 milljónir punda fyrir ári síðan.
Manchester United hafði einnig áhuga á Anderson, en leikmaðurinn vildi frekar ganga í raðir nágrannanna í City.
Anderson er nú á leið í læknisskoðun í Bandaríkjunum, þar sem hann er staddur með enska landsliðinu, áður en hann skrifar undir langtímasamning við Man City.