Sjáðu mörkin: Ekvador svaraði umdeildu marki Þjóðverja með glæsiskoti

Leroy Sane skoraði sitt fyrsta mark á mótinu

Mynd: EPA

Leikur Ekvador og Þýskalands í E-riðli heimsmeistaramótsins byrjar með látum. Leroy Sane skoraði umdeilt mark strax á 2. mínútu en Nilson Angulo svaraði með glæsilegu skoti fyrir utan teig. Fyrsta mark Ekvador á mótinu.
Sane skoraði eftir aðeins tvær mínútur eftir frábæran undirbúning Aleksandar Pavlovic og Florian Wirtz.
Pavlovic lyfti boltanum yfir varnarmann Ekvador og kom honum á Wirtz, sem tók skemmtilega hreyfingu inn á teignum áður en hann lagði boltann til hliðar á Sane. Hann setti boltann örugglega neðst í vinstra hornið.
Ekvadorar voru brjálaðir og vildu fá dæmt hættuspark á Þjóðverja. Pavlovic lyfti fætinum hátt til að koma boltanum yfir varnarmann Ekvador og fóturinn fór nálægt andliti hans áður en boltinn barst á Wirtz.
VAR-dómarar skoðuðu atvikið en sáu ekkert athugavert og markið fékk að standa.
Sjáðu markið hér
Nilson Angulo var rétt í þessu að jafna metin með hörkuskoti rétt fyrir utan teig. Sá er að þakka traustið en hann kom inn í byrjunarliðið fyrir þennan leik og er nú búinn að gera fyrsta mark liðsins á mótinu.
Sjáðu markið hjá Nilson hér