Fotbolti.net
25.06.26 - 18:20
Brynjar Ingi Erluson

Þýskur landsliðsmaður á leið til Bayern

Nathaniel Brown er á leið til Bayern

Nathaniel Brown er á leið til Bayern

Canon

Mynd: EPA

Þýski landsliðsmaðurinn Nathaniel Brown er á leið til Bayern München frá Eintracht Frankfurt fyrir 55 milljónir evra, en þetta fullyrðir Fabrizio Romano á X.
Brown er 23 ára gamall vinstri bakvörður sem er orðinn fastamaður í þýska A-landsliðinu.

Hann lék 41 leik með Eintracht Frankfurt á síðustu leiktíð og kom að tíu mörkum.

Bakvörðurinn hefur byrjað báða leiki Þjóðverja á heimsmeistaramótinu og komið að tveimur mörkum, en Þýskaland hefur þegar tryggt sér sæti í 32-liða úrslitum mótsins.

Bayern hefur átt í viðræðum við Frankfurt síðustu vikur og nú er samkomulag í höfn.

Brown mun skrifa undir fimm ára samning, en Fabrizio Romano segir félagaskiptin nánast frágengin með frasanum fræga: „Here we go!“

Þetta er sterk viðbót við hóp Bayern, sem ætlar sér enn stærri hluti en á síðustu leiktíð. Bayern vann þýsku deildina og bikarinn, ásamt því að komast í undanúrslit Meistaradeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.