Guðmundur Þór Júlíusson gerði í dag þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt, Fjölni, en hann kemur til félagsins frá HK.
Guðmundur er 27 ára gamall varnarmaður og uppalinn í Fjölni en hann hefur spilað með HK frá 2015.
Þar hefur hann spilað stóra rullu og hjálpaði hann meðal annars liðinu að komast upp í Pepsi Max-deildina árið 2018.
HK-ingar féllu aftur niður í Lengjudeildina eftir tímabilið í sumar og var Guðmundur að renna út á samningi.
Hann er nú kominn aftur í Grafarvoginn og gerir þriggja ára samning við Fjölni.
Fjölnismenn höfnuðu í 3. sæti Lengjudeildarinnar á síðustu leiktíð með 42 stig. Ásmundur Arnarsson hætti með liðið og tók Úlfur Arnar Jökulsson við.
Athugasemdir