Lionel Messi, leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi, hefur skorað aðeins einu sinni úr þrjátíu tilraunum sínum í frönsku deildinni á fyrsta tímabili hans með liðinu.
PSG gerði markalaust jafntefli við Nice í gær eftir að hafa verið með mikla yfirburði í leiknum.
Messi hefur átt þrjátíu skottilraunir í deildinni og aðeins skorað einu sinni. Hann hefur þá lagt upp þrjú mörk en allar þær stoðsendingar komu í 3-1 sigrinum á St. Etienne um helgina.
Þrátt fyrir mikla yfirburði PSG í deildinni á þessari leiktíð þá hefur liðið ekki verið að spila heillandi fótbolta.
Neymar er með aðeins þrjú mörk í tíu leikjum. Mbappe var með tólf mörk í fyrstu fjórtán leikjunum á síðasta tímabili en er aðeins með sjö mörk í fjórtán leikjum á þessu tímabili. Hann hefur aftur á móti lagt upp sjö mörk fyrir liðsfélaga sína í deildinni.
Athugasemdir