Inter og Juve vilja Alisson - Man Utd vill annan Bruno - Liverpool og Arsenal fylgjast með Bastoni
   þri 03. mars 2026 11:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Landsliðskonurnar elta hvor aðra - „Erum mjög góðar vinkonur"
PEI
Hlín Eiríksdóttir, Katla Tryggvadóttir og Guðný Árnadóttir.
Hlín Eiríksdóttir, Katla Tryggvadóttir og Guðný Árnadóttir.
Mynd: Kristianstad
Hlín fagnar hér marki gegn Norður-Írlandi í síðasta landsliðsverkefni.
Hlín fagnar hér marki gegn Norður-Írlandi í síðasta landsliðsverkefni.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hlín Eiríksdóttir gekk í janúar í raðir Fiorentina á Ítalíu á láni frá enska félaginu Fiorentina. Í Flórens hittir Hlín fyrir landsliðskonuna Kötlu Tryggvadóttur. Þær eru núna að spila saman með þriðja félagsliðinu á ferlinum - fyrst léku þær saman hjá Val, svo Kristianstad og nú Fiorentina.

Katla var valin í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Spáni og Englandi en dró sig úr hópnum vegna veikinda. Hlín ræddi við Fótbolta.net í aðdraganda leiksins gegn Spáni sem fram fer í dag. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net. Viðtalið við Hlín má sjá í heild sinni í spilaranum neðst.

„Þetta gerðist mjög hratt, var í rauninni enginn aðdragandi. Þetta kom upp, samtalið tekið við Leicester og Fiorentina. Þetta varð niðurstaðan og ég er mjög sátt með hana," sagði sóknarmaðurinn Hlín.

Hvernig er að hafa annan Íslending með þér?

„Það er frábært, þetta er líka ekki hver sem er, við erum mjög góðar vinkonur ég og Katla og þetta er í raun þriðja félagsliðið sem við spilum í saman - við erum aðeins að elta hvor aðra og það er mjög gaman. Það hjálpar manni auðvitað að hafa einhvern sem maður þekkir til að komast hraðar inn í alla hluti - ákveðin þægindi í því."

„Mér líður mjög vel á Ítalíu, er búin að fá að spila slatta í síðustu leikjum og er vonandi að vinna mér inn sæti í liðinu. Það hefur gengið vel inni á vellinum, spilum fótbolta sem hentar mér vel og ég er mjög bjartsýn fyrir framhaldinu."


Væri hún til í að skipta alveg yfir til Fiorentina?

„Þetta er stór spurning, ég hreinlega veit það ekki. Eins og staðan er núna er ég bara á láni og á eitt ár eftir af samningi við Leicester eftir þetta tímabil. Við sjáum bara hvað framtíðin ber í skauti sér," sagði Hlín.

Fiorentina situr sem stendur í sjötta sæti ítölsku deildarinnar. Hlín hefur byrjað síðustu tvo leiki og þeir hafa báðir unnist.
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Athugasemdir
banner
banner