Tottenham og Newcastle hafa áhuga á Grealish - Newcastle bjartsýnt á að fá Guehi - Elanga í læknisskoðun
   fös 03. apríl 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Svínaflensan varð til þess að Glódís spilaði fyrsta leikinn
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú þegar kórónaveiran gengur yfir hefur Einar Guðnason, aðstoðarþjálfari karlaliðs Víkings, rifjað upp á Twitter þegar Glódís Perla Viggósdóttir spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik með HK/Víkingi.

Glódís Perla spilaði með HK/Víkingi í 8-liða úrslitum í 1. deild kvenna árið 2009 en hún var þá ennþá í 4. flokki!

Glódís kom beint inn í byrjunarliðið í leik gegn Völsungi þar sem sjö leikmenn HK/Víkings voru fjarverandi með svínaflensuna.

Völsungur vann 1-0 og 1-1 jafntefli varð niðurstaðan í síðari leiknum en Glódís Perla spilaði líka þann leik.

Glódís spilaði fimm leiki með HK/Víkingi árið eftir og árið 2011 skoraði hún fjórtán mörk í ellefu leikjum áður en hún gekk til liðs við Stjörnuna.

Í dag spilar Glódís með FC Rosengard í Svíþjóð en hún á 84 landsleiki að baki þrátt fyrir að vera einungis 24 ára gömul.

Athugasemdir
banner
banner