„Augljóslega er KR mun sigurstranglegra en við förum ekki í neinn leik til að tapa," segir Björgvin Stefán Pétursson, fyrirliði Leiknis Fáskrúðsfirði.
Leiknismenn munu mæta KR en í dag var dregið í 32-liða úrslit.
Leiknismenn munu mæta KR en í dag var dregið í 32-liða úrslit.
Björgvin telur að sitt lið eigi möguleika gegn KR-ingum en til þess að það takist þarf að halda Óskari Erni Haukssyni í skefjum.
„Vonandi fæ ég það verkefni, vonandi verð ég settur eins og Herrera á Hazard. Ég heyri í Viðari (þjálfara Leiknis) með þetta," segir Björgvin sem vonast eftir góðum stuðningi.
„Ég trúi ekki öðru en að menn mæti af öllum fjörðum og styðji okkur. Þó við höfum slegið Fjarðabyggð út í síðasta leik vona ég að Fjarðabyggðarmenn styðji okkur á móti risanum sem KR er."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar er Björgvin meðal annars spurður út í baráttuna framundan í Inkasso-deildinni.






















