Heiður að fá símtalið - „Markmiðið að vinna deildina og fara upp"
Auglýsing

Magnús Haukur Harðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnir ætlar sér upp úr 2. deild í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Haukur Harðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er faglegt mat hjá góðu fólki," segir Magnús Haukur Harðarson, þjálfari Fjölnis í samtali við Fótbolta.net, þegar hann er spurður út í spánna fyrir 2. deild kvenna í sumar.
Fjölni er spáð efsta sæti deildarinnar. „Mér hefði fundist skrítið ef okkur hefði ekki verið spá fyrsta sæti. Það er gott að vera með pressu á bakinu."

Magnús Haukur tók við Fjölni í vetur eftir að liðið féll úr Lengjudeildinni í fyrra. Hann hefur áður þjálfað hjá félaginu og þekkir vel til í Grafarvoginum.
„Þetta var frekar þungt tímabil hjá Fjölni síðasta sumar og ég tek við þessu síðasta haust. Ég fór á fullt í að vinda ofan af ýmsum hlutum, meðal annars að uppfæra leikmannahópinn... fyrir áramót æfðum við gríðarlega vel og spiluðum nokkra leiki sem gengu kannski ekkert æðislega vel. En við vorum að leggja inn í bankann sem við höfum verið að uppskera úr eftir áramót. Við erum með 15 nýja leikmenn en það hefur gengið rosalega vel heilt yfir," sagði Magnús Haukur um undirbúningstímabilið.
Hann segist vera með öflugan hóp sem getur gert góða hluti í sumar. „Hópurinn er búinn að smella vel saman," segir hann.
Magnús er uppalinn í Fjölni og segir að það hafi verið heiður að fá símtalið að taka við liðinu. „Ég er uppalinn í Fjölni og spilaði minn 'ótrúlega' yngri flokka feril í Fjölni. Það var heiður að fá símtalið. Ég er ekki búinn að þjálfa í mörg ár og þetta sýnir að Fjölnir hefur trú á yngri þjálfurum, bæði í meistaraflokki karla og kvenna. Ég held að það sé mikilvægt fyrir félög að sækja í þjálfara sem eru tilbúnir að leggja mikið á sig og tilbúnir að gera hluti fyrir félagið til að rífa það á hærri stað en það er á í dag."
Þjálfarinn segir að 2. deildin sé sterk en stefnan hjá Fjölni er ekki að vera þar lengi. „Fjölnir á að vera á hærri stað og þarf að koma sér hærra. Það er allt til alls til að gera það."
„Við byrjum líka sterkt, við erum að fara að spila á móti ÍA fyrst og svo Völsungi í öðrum leik. Þetta eru liðin sem spáð er öðru og þriðja sæti. Við eigum þessi lið á heimavelli og það er krafa á mitt lið að við vinnum okkar heimaleiki. Ef byrjunin verður góð þá getur endirinn orðið betri. Þetta verður spennandi sumar og skemmtilegt. Við þurfum að sýna 2. deildinni virðingu."
„Ég hef mikinn metnað fyrir því sem ég geri. Stærsta markmiðið er að vinna deildina og fara upp. Svo er það líka að stabílisera Fjölni í Lengjudeildinni og taka það þaðan. Minn draumur í þessum fullkomna heimi er að fara upp með Fjölni á fjórum árum í efstu deild. Það er allt mögulegt en það þarf mikið að ganga upp. Við tökum eitt skref í einu og sýnum 2. deild virðingu. Við ætlum upp úr þeirri deild núna."
Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan en það er stórleikur á morgun þegar Fjölnir tekur á móti ÍA.