Fotbolti.net
01.05.23 - 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Svona er spáin í 2. deild kvenna - Hvaða tvö lið fara upp í ár?

Alda Ólafsdóttir, leikmaður Fjölnis.

Alda Ólafsdóttir, leikmaður Fjölnis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Í dag hefst 2. deild kvenna með leik ÍA og Sindra í Akraneshöllinni. Flautað verður til leiks þar núna klukkan 12:00.

Hitað var upp fyrir 2. deildina á Heimavellinum á dögunum og þar var spáð í spilin.
Spá Heimavallarins er svona:
1. Fjölnir
2. ÍA
3. Völsungur
4. ÍR
5. Haukar
6. KH
7. Álftanes
8. Sindri
9. ÍH
10. Einherji
11. Smári

Rætt var um það í þættinum að búist sé við því að þetta verði aðallega barátta á milli efstu þriggja liðanna í spánni um sætin tvö upp í Lengjudeildina. Fjölni er spáð efsta sæti deildarinnar.

„Ég held að þær séu með besta leikmanninn í deildinni og mesta breiddin er í Fjölnisliðinu," sagði Pétur Rögnvaldsson, þjálfari Gróttu, í Heimavellinum og átti þar við Öldu Ólafsdóttur er hann nefndi besta leikmanninn.

„Þau hafa tvo leikmenn í hverri stöðu," sagði Aníta Lísa Svansdóttir um Fjölnisliðið. „Það gefur augaleið að það er meiri samkeppni á æfingum og þá verða allir betri."

Eins og áður segir þá hefst deildin í dag en fyrsta umferðin klárast á morgun með tveimur leikjum.

Fyrsta umferðin í 2. deild:
1. maí, 12:00 ÍA - Sindri (Akraneshöllin)
1. maí, 14:00 ÍH - Einherji (Skessan)
1. maí, 16:00 ÍR - Völsungur (ÍR-völlur)
2. maí, 19:15 Álftanes - Smári (OnePlus völlurinn)
2. maí, 19:15 Haukar - KH (Ásvellir)
ÍA er spáð öðru sæti.

ÍA er spáð öðru sæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimavöllurinn: Upphitunarpartý og spá fyrir 2. deild

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.