Vinicius Jr orðaður við Man City - Bayern vill Gordon - Arsenal, Liverpool og Barcelona hafa áhuga á Barcola
Horfðu á Besta spjallið - Helstu sögulínur teknar fyrir
Kristín Dís: Náðum að sigla þessu heim
Einar Guðna: Markmaðurinn minn átti náttúrúlega að vera tilbúinn
Gylfi Tryggva: Skandall, bara algjör skandall að dæma vítaspyrnu
Ian Jeffs: Þess vegna skorum við þrjú mörk í seinni
Guðni: Ef ekki hefði verið fyrir markmann þeirra þá hefði sigurinn orðið stærri
Ída Marín: Þá er þetta stress farið
Voru mjög daprar í fyrri hálfleik - „Ekki eins og við í Þór/KA viljum gera hlutina"
Óskar Smári: Förum að verja eitthvað sem er ekki komið
Systurnar svekktar - „Hann átti að láta okkur heyra það"
Hildur María svekkt: „Þetta var bara stöngin út“
Sigríður Theódóra: „Það var aldrei spurning um annað en að vera þar áfram“
Elmar Atli: Of graðir inn í seinni hálfleik
Heimir: Fórum í gildrurnar sem þeir settu fyrir okkur
Kennie: Pirraði mig mjög mikið
Úlfur Ágúst: Veit ekki hvað gerist í hálfleik
Rúnar Kristins: Ekki fallegur fótbolti en ég er með marga klóka menn
Jói Kalli: Gríðarlega svekktur
Aron þreyttur: Kærkomið að komast inn á völlinn aftur
Halli vildi tvö víti: Þeir fá að hanga alltof mikið í Ljúbba
   sun 03. maí 2026 21:11
Stefán Marteinn Ólafsson
Sölvi: Reynsluleysi hjá mér að gleyma að ég var búinn að skipta markmanninum inn á
Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga
Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar áttu góða ferð suður með sjó þegar þeir heimsóttu Keflavík á HS Orku völlinn í 5. umferð Bestu deild karla í kvöld.


Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  3 Víkingur R.

„Erfiður leikur, erfiðar aðstæður" sagði Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga eftir sigurinn í kvöld. 

„Mér fannst við ekkert sérstakir í dag, ef ég á að vera hreinskilinn. Mér fannst þetta þungt og hægt þannig ég er bara sáttur fara með sigur hérna" 

Víkingar áttu í brasi með Keflvíkinga í seinni hálfleik en þeir náðu á köflum að þrýsta Víkingum vel niður. 

„Þeir voru flottir í dag. Þeir voru tilbúnir að slást og voru mikið yfir í barningnum" 

„Mér fannst við aðeins þegar það kom að 2-1 markinu okkar, þá fannst mér við aðeins vera að banka á þá eftir skiptingarnar. Þá kom aðeins meiri stjórn á leiknum. Við fórum að þora aðeins að spila í gegnum miðjuna og finna sendingarnar í gegnum miðjuna og þaðan út á kantinn" 

„Þetta var ekki góður leikur og Keflavík gerði okkur virkilega erfitt fyrir  og bara sáttur með að taka þrjú stig" 

Sölvi Geir var búin að nota allar skiptingarnar sínar þegar tæpur klukkutími var liðin af leiknum.

„Ástæðan fyrir skiptingunum var að breyta til. Ég vildi fá eitthvað meira líf í þetta en síðan er það bara reynsluleysi hjá mér sem þjálfara að gleyma að ég var búin að skipta markmanninum líka inn á. Ég hélt ég ætti eina eftir inni" 

„Ég ætlaði ekki að vera búin að klára þær þarna en maður lærir bara af þessu" 

Aron Elís Þrándarson spilaði sínar fyrstu 90 mínútur í kvöld eftir krossbandaslit. 

„Æðislegt að fá hann til baka. Það voru fleiri, Davíð Atla er núna að líka að fá 90 mínútur þannig það er bara gott að geta dreift álaginu og mínútum á milli leikmanna. Ég er bara virkilega sáttur með þeirra framlag í dag, þeir voru að berjast fyrir sínu í dag og bara mikilvægt að fá sem flesta með mínútur í staðin fyrir að þegar það kemur að törninni þar sem við þurfum að rótera að menn séu allavega búnir að spila einhverjar mínútur" sagði Sölvi Geir Ottesen.


Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 5 5 0 0 22 - 9 +13 15
2.    Víkingur R. 5 4 1 0 13 - 4 +9 13
3.    Breiðablik 5 3 2 0 8 - 2 +6 11
4.    Fram 5 3 1 1 15 - 9 +6 10
5.    Valur 5 3 0 2 11 - 9 +2 9
6.    Stjarnan 5 2 0 3 11 - 13 -2 6
7.    Þór 5 2 0 3 5 - 11 -6 6
8.    ÍA 5 1 2 2 6 - 10 -4 5
9.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
10.    Keflavík 5 1 1 3 6 - 10 -4 4
11.    FH 5 0 1 4 8 - 15 -7 1
12.    ÍBV 5 0 1 4 6 - 16 -10 1
Slapp
banner
banner