Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 03. júní 2021 08:00
Victor Pálsson
Charlie Austin til QPR (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Charlie Austin hefur skrifað undir tveggja ára samning við enska Championship-félagið Queens Park Rangers.

Þetta staðfesti félagið í gær en Austin var í láni hjá QPR seinni hluta tímabilsins í vetur.

Austin var lánaður til QPR frá West Bromwich Albion þar sem hann lék frá 2019 til ársins 2021.

Austin átti ágætis tímabil með QPR og skoraði átta deildarmörk í 21 leik.

Hann lék einnig með QPR frá 2013 til 2016 og síðar Southampton og svo WBA.
Athugasemdir
banner
banner
banner