Fotbolti.net
03.06.25 - 21:13
Alexandra Bía Sumarliðadóttir

Sveindís: Gerist stundum þegar við spilum á móti stærri liðum

Auglýsing
Sveindís Jane Jónsdóttir spilaði í kvöld sinn 50. landsleik fyrir Ísland.

Sveindís Jane Jónsdóttir spilaði í kvöld sinn 50. landsleik fyrir Ísland.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair

„Bara leiðinlegt að tapa, alltaf jafn leiðinlegt," sagði landsliðsjonan Sveindís Jane Jónsdóttir eftir tap gegn Frakklandi á Laugardalsvelli í kvöld. 

„Hefðum getað gert betur í fyrri hálfleik og fáum á okkur tvö skítamörk eiginlega. Mér fannst við geta gert betur í mörkunum og allavega reynt að ná að halda hreinu og hefðum kannski getað sett mark í fyrri."

Frakkarnir fengu mikið af ódýrum aukaspyrnum og það virtust fá vafaatriði falla með íslenska liðinu í dag. „Það er bara eitthvað sem við getum ekki stjórnað, dómarinn dæmir á allt sem þeir vilja og var kannski svolítið mikið að dæma á okkur en við fengum ekkert á móti. Þetta er eitthvað sem við getum ekki stjórnað og þurfum bara að vera klókar og geta tekið á móti þessu. Þetta gerist stundum þegar við spilum á móti stærri liðum."

Sveindís spilaði í kvöld sinn 50. landsleik. Sveindís segir tilfinninguna góða.

„Bara geggjuð. Alltaf gaman að spila landsleiki, leiðinlegt að vinna ekki 50. leikinn en það eru fleiri leikir sem ég mun spila og þeir verða vonandi bara betri," sagði Sveindís Jane um þennan tímamótaleik.

Nánar er rætt við Sveindísi í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.