Gunnar Orri Olsen er mikilvægur hlekkur í ógnarsterku U19 liði FC Kaupmannahafnar sem vann tvennuna í Danmörku á dögunum.
FCK vann bæði deildina og bikarinn eftir þægilegan sigur gegn nágrönnunum í liði AB í bikarúrslitaleiknum.
Gunnar Orri skoraði tvennu í 4-1 sigri til að innsigla frábæra tvennu.
Gunnar þykir mikið efni og hefur spilað 28 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Hann er á leið í mikilvægt verkefni með U19 landsliðinu á næstu dögum þar sem táningarnir reyna sitt besta í undankeppni fyrir EM.
27.05.2026 19:37
Hópur U19 - Danmerkurmeistari og fimm Þórsarar
U19 vinder The Double! ????????
— F.C. København (@FCKobenhavn) June 3, 2026
Med en stærk sæsonafslutning sikrede vores U19-hold sig også pokaltitlen og fuldendte dermed en flot sæson med både mesterskab og pokaltitel ??????
Målscorere i finalen:??? Gunnar x2??? Boison??? Sean
Stort tillykke til spillere og stab med en… pic.twitter.com/HOM0abEG5H





