Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, hefur ítrekað verið spurður út í stöðu sína eftir leiki síðustu vikurnar. Stjarnan hafði ekki unnið deildarleik í rúmar sex vikur þegar liðið heimsótti Þór á sunnudag.
Stjarnan vann 1-3 endurkomusigur á útivelli og var Jökull í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Stjarnan vann 1-3 endurkomusigur á útivelli og var Jökull í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 3 Stjarnan
Hann var spurður hvort honum hefði liðið eins og hann hefði verið að fara í úrslitaleik um starfið sitt.
„Nei, ég horfði ekki á það og nálgaðist það ekki þannig. Ef ég ætla að fara vera einhver taugahrúga þá smitast það inn á völlinn. Ég held að liðið ætti erfitt með að spila af sjálfstrausti og öryggi ef ég væri hræddur. Ég nýt þess að mæta í leik og hef engar áhyggjur af því, þetta er bara hluti af þessu og umræðan verður bara eins og hún verður. Nú förum við aftur í útileik í bikarnum og svo fáum við heimaleik. Nú er að byggja ofan á, byggja upp í liðinu. Við viljum skila til baka til stuðningsmanna, sýnt frammistöðu og borgað stuðningsmönnum til baka í næsta heimaleik í deild," sagði Jökull. Viðtalið má nálgast í spilaranum neðst.
Stjarnan heimsækir Mosfellsbæ næsta miðvikudag og mætir þar Lengjudeildarliði Aftureldingar í 8-liða úrslitum bikarsins. Í kjölfarið kemur svo Breiðablik í heimsókn á Samsungvöllinn þriðjudaginn 16. júní.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 10 | 9 | 1 | 0 | 34 - 6 | +28 | 28 |
| 2. KR | 10 | 8 | 1 | 1 | 38 - 23 | +15 | 25 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 10 | 5 | 0 | 5 | 19 - 22 | -3 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 9 | 3 | 2 | 4 | 12 - 18 | -6 | 11 |
| 8. KA | 9 | 3 | 1 | 5 | 12 - 15 | -3 | 10 |
| 9. Stjarnan | 10 | 3 | 1 | 6 | 18 - 22 | -4 | 10 |
| 10. Þór | 9 | 2 | 0 | 7 | 7 - 23 | -16 | 6 |
| 11. ÍBV | 9 | 1 | 2 | 6 | 14 - 23 | -9 | 5 |
| 12. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |



