Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
Brynjar Björn um rauða spjaldið: Þetta er nú eina trixið sem ég kann
Lagði upp fjögur mörk í Eyjum - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Luke Rae: Mér fannst aldrei líklegt að þeir myndu koma til baka
Skoraði draumamark en þarf að hætta tuða - „Kontra hann svo í Samúel”
Hilmar Árni: Það þarf oft lítið til að meiða okkur
Linta: Ég vil óska strákunum til hamingju
„Mér fannst þeir orðnir hræddir"
Jóhann: Grafalvarlegt fyrir okkur
Badu: Hef aldrei efast um karakterinn
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
   sun 31. maí 2026 20:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Svekktur að tapa þessu. Við byrjuðum leikinn mjög fínt, missum svo Atla (Sigurjónsson) út af og það riðlaði aðeins skipulaginu. Við leyfðum þeim að vera aðeins of mikið með boltann, hefði viljað sjá okkur aðeins orkumeiri og halda aðeins betur í boltann," segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir tap gegn Stjörnunni.

Þór leiddi 1-0 í hálfleik en mörkin í fyrri hálfleik hefðu hæglega getað orðið fleiri.

Lestu um leikinn: Þór 1 -  3 Stjarnan

„Við ætluðum að bæta í tempóið í seinni hálfleik, náum því ekki alveg og svo koma tveir dreamerar (draumamörk) frá þeim sem er erfitt að stoppa. Mér fannst við ekki alveg nægilega stórir að halda í leikplanið. Þeir stjórnuðu leiknum, gerðu það mjög vel og eru vel spilandi."

„Miðað við (umræðuna um Jökul og hans framtíð) þá fannst mér leikmenn Stjörnunnar bregðast vel við og þeir vilja greinilega hafa Jökul í starfi, hann er greinilega með leikmennina með sér því þeir voru með mjög gott hugarfar í dag. Heilt yfir fannst mér frammistaðan fín hjá mínu liði. Mér fannst þessi leikur geta dottið báðu megin, en hann dettur þeirra megin með þessum dreamerum."


Tapið var það sjötta í röð hjá Þór.

„Mér fannst alveg hugur í okkur, vorum að reyna. Það er engan bilbug á okkur að finna, við tökum viku frí, hef verið ánægður með hvernig við höfum verið að æfa. Það er erfitt að tapa mörgum leikjum. Næst eigum við ÍBV og FH, lið í kringum okkur. Við þurfum að vera stórir, mæta og berjast í þeim leikjum."

Daninn Christian Greko Jakobsen fékk að líta rauða spjaldið í seinni hálfleik fyrir að skalla Guðmund Kristjánsson leikmann Stjörnunnar.

„Mér fannst skrítið að Gummi fái ekki gult líka í þessu augnabliki, mér fannst hann ögra honum og það hefði verið seinna gula á hann. Rautt á Greko er líklegast rétt, en held að Gummi hefði átt að fá seinna gula."

Siggi er bjartsýnn á betri úrslit í næstu leikjum.

„Við verðum að vera jákvæðir og brattir. Við hristum það af okkur, við þurfum að hvíla okkur aðeins og mæta vel gíraðir í næstu æfingaviku, það verður mikilvæg vika. Mér líður eins og leikmenn séu með sjálfstraust og vilji þetta. Þeir eru að æfa vel, þetta er alveg við það að detta finnst mér."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Slapp
banner
banner