Það fóru nokkrir vináttulandsleikir fram víða um heim í dag og komu þrjár HM-þjóðir við sögu.
Tvær þeirra mættust í innbyrðisviðureign í Rotterdam, Hollandi, þar sem heimamenn töpuðu óvænt gegn Alsír.
Hollendingar voru talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en tókst ekki að koma boltanum í netið. Bæði lið gerðu mikið af breytingum í leikhlé og var seinni hálfleikurinn jafnari.
Það var lítið um færi en Anis Hadj Moussa náði að stela sigrinum fyrir Alsíringa með marki á 86. mínútu. Hann skoraði eftir undirbúning frá Nabil Bentaleb, fyrrum leikmanni Tottenham og Newcastle sem er í dag samherji Hákons Arnars Haraldssonar hjá Lille.
Bentaleb var í byrjunarliði Alsíringa ásamt mönnum á borð við Rayan Aït-Nouri, Riyad Mahrez, Mohamed Amoura, Amine Gouiri og Houssem Aouar.
Til gamans má geta að níu af ellefu byrjunarliðsmönnum hollenska liðsins leika í ensku úrvalsdeildinni, þar af þrír fyrir Brighton. Hinir tveir eru Frenkie de Jong hjá Barcelona og Donyell Malen hjá Roma. Þá voru 6 af 11 leikmönnum Hollendinga sem komu inn af bekknum úr ensku úrvalsdeildinni.
Þriðja HM-þjóðin spilaði við Danmörku á hlutlausum velli í Sviss. Austur-Kongó mætti þar til leiks en niðurstaðan varð markalaust jafntefli.
Yoane Wissa, Arthur Masuaku, Chancel Mbemba og Axel Tuanzebe voru í byrjunarliði Kongó og þá komu úrvalsdeildarleikmennirnir Aaron Wan-Bissaka og Noah Sadiki inn af bekknum. Danmörk fer ekki á HM eftir tap gegn Tékklandi í úrslitaleik umspilsins.
Pólland og Nígería gerðu 2-2 jafntefli og þá skoraði Francesco Pio Esposito eina mark ítalska landsliðsins í naumum sigri í Lúxemborg.
Oscar Gloukh skoraði eina markið í sigri Ísrael gegn Albaníu og Gíbraltar setti fjögur mörk í stórsigri gegn Jómfrúaeyjum. Að lokum settu Filippseyjar fimm mörk í þægilegum sigri gegn Gvam.
Lúxemborg 0 - 1 Ítalía
0-1 Pio Esposito ('49 )
Holland 0 - 1 Alsír
0-1 Anis Hadj Moussa ('86 )
Pólland 2 - 2 Nígería
0-1 Terem Moffi ('23 )
1-1 Kacper Potulski ('45 )
1-2 Paul Onuachu ('77 , víti)
2-2 Przemyslaw Wisniewski ('95 )
Austur-Kongó 0 - 0 Danmörk
Albania 0 - 1 Israel
0-1 Oscar Gloukh ('73 )
Filippseyjar 5 - 1 Gvam
Gíbraltar 4 - 0 Jómfrúaeyjar
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




