03.07.17 - 22:29
Stefnir Stefánsson
Gregg Ryder: Einbeitingin og aginn var framúrskarandi í kvöld
Auglýsing

Gregg var að vonum ánægður með sigurinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gregg var að vonum ánægður með sigurinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur Reykjavík vann gríðarlega sterkan 1-0 sigur á Fylki í toppbaráttuslag Inkasso-deildarinnar í kvöld.
Gregg Ryder þjálfari Þróttar var mjög ánægður með sigurinn þegar hann gaf sig á tal við fjölmiðla eftir leik kvöldsins.
„Ég er gríðarlega ánægður, sérstaklega eftir úrslitin um síðustu helgi. Mér fannst við þurfa að stíga upp og svara fyrir það, og það á móti einu af bestu liðum deildarinnar. Við þurftum að sýna góða frammistöðu og mér fannst það vera nákvæmlega það sem við gerðum\" sagði Gregg en sigurinn í kvöld kom eftir tapleik liðsins gegn Leikni Fáskrúðsfirði í síðustu umferð fyrir austan.
Mark Þróttar kom eftir langt innkast þegar aðeins voru rúmar 20 sekúndur liðnar af leiknum. Aðspurður hvort það hefði verið hluti af leikplani þeirra sagði Gregg að þeir væru að sjálfsögðu með plan fyrir öll föst leikatriði.
„Það besta við þetta var viðbrögð okkar eftir markið, fyrstu fimm mínúturnar við sýndum þá mikla einbeitingu og héldum áfram að vinna okkar vinnu. Við höfum líka skorað snemma í síðustu tveim leikjum fram að þessum en okkur hefur ekki tekist að vinna þá. Mér fannst einbeitingin og aginn algjörlega framúrskarandi hér í kvöld.\" bætti Gregg við.
„Ég er mjög ánægður með að hafa sigrað svona sterkan andstæðing hér í kvöld en ég verð að bæta því við að mér fannst sigurinn fyllilega verðskuldaður.\" sagði Gregg og bætti því við að þrátt fyrir að Fylkir hefði verið mun meira með boltann þá hafi það verið hluti af leikplani þeirra og að það hafi gengið fullkomnlega upp í kvöld.
„Við settum leikinn upp til að reyna að vinna andstæðing okkar í kvöld eins og við gerum ávallt. Mér fannst það takast vel og ég er ánægður með það.\"
Sjáðu viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að ofan.