Fotbolti.net
03.07.20 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Helgi með flautuna þegar Íslandsmeistararnir fá bikarmeistarana í heimsókn

Ívar Orri snýr aftur úr meiðslum

Helgi Mikael Jónasson.

Helgi Mikael Jónasson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Mikael Jónasson verður dómari á laugardag þegar Íslandsmeistarar KR taka á móti bikarmeisturum Víkings í 4. umferð Pepsi Max-deildarinnar.

Þórður Arnar Árnason og Guðmundur Ingi Bjarnason verða aðstoðardómarar í þessum stórleik umferðarinnar en Einar Ingi Jóhannsson verður fjórði dómari.

Ívar Orri Kristjánsson, dómari ársins í fyrra, dæmir leik Gróttu og HK. Þetta er fyrsti Pepsi Max leikur Ívars á tímabilinu en hann meiddist í bikarleik fyrir mót en hefur jafnað sig á þeim meiðslum.
föstudagur 3. júlí
20:00 Valur-ÍA (Origo völlurinn) - Egill Arnar Sigurþórsson

laugardagur 4. júlí
14:00 Grótta-HK (Vivaldivöllurinn) - Ívar Orri Kristjánsson
14:00 Fjölnir-Fylkir (Extra völlurinn) -
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
17:00 KR-Víkingur R. (Meistaravellir) -
Helgi Mikael Jónasson

sunnudagur 5. júlí
16:00 KA-Breiðablik (Greifavöllurinn)
Ívar Orri Kristjánsson snýr aftur úr meiðslum.

Ívar Orri Kristjánsson snýr aftur úr meiðslum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tom

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.