RB Leipzig hefur staðfest komu framherjans Andre Silva til félagsins frá Eintracht Frankfurt.
Þessi 25 ára gamli Portúgali skoraði 28 mörk í 32 leikjum í þýsku úrvalsdeildinni fyrir Frankfurt á síðustu leiktíð. Næst markahæstur á eftir Robert Lewandowski framherja Bayern Munchen.
Silva kom við sögu í þremur af fjórum leikjum Portúgal á EM en tókst ekki að skora.
Leipzig greiðir 20 milljónir punda fyrir Andre Silva og hann skrifar undir 5 ára samning við félagið.
Athugasemdir