ÍH hefur fengið Arnar Sigþórsson á láni frá FH. ÍH leikur í 3. deild.
Arnar lék með Þrótti Vogum í 2. deild á láni fyrri hluta tímabilsins þar sem hann lék þrjá leiki.
Arnar er mikill markaskorari en hann var markahæsti leikmaður 2. flokks á síðasta tímabili þegar FH varð Íslandsmeistari.
ÍH bindur miklar vonir við leikmanninn en liðið er sem stendur í neðsta sæti deildarinnar og mætir toppliði Hetti/Huginn á útivelli í dag.
Athugasemdir