Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 03. júlí 2021 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Emma Steinsen aftur í Gróttu (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Emma Steinsen Jónsdóttir er aftur mætt á Seltjarnarnes á láni frá Val.

Emma er átján ára gömul og var á láni hjá Fylki fyrri hluta tímabils.

Hún lék einn leik með Fylki en snýr nú aftur til Gróttu þar sem hún var á láni í fyrra.

Emma spilaði 16 leiki í fyrra er Seltirningar enduðu um miðja Lengjudeild.

Hún lék sinn fyrsta leik fyrir Gróttu í gær þegar hún kom inn á í sigri gegn Augnabliki.

Emma á sjö leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.

Hér með fréttinni má sjá Emmu í leik með Gróttu síðasta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner