Samningur Lionel Messi við Barcelona rann út á dögunum og eru núna í gangi viðræður um nýjan samning við argentísku stórstjörnuna.
Samningurinn sem var að renna út var til fjögurra ára og fékk Messi tæplega 500 milljónir punda frá Barcelona fyrir þau fjögur ár.
Það er ótrúleg upphæð og því er Kevin Durant, einn besti körfuboltamaður í heimi sammála.
Durant fær 164 milljónir dollara fyrir fjögur ár hjá Brooklyn Nets, en hann kemst ekki nálægt Messi í launatölum, ekki nálægt honum! Durant sá frétt um launatölur Messi og deildi skoðunum sínum á Twitter.
„Klikkun," skrifaði Durant einfaldlega. Hann var ekki eini körfuboltamaðurinn sem tjáði sig á samfélagsmiðlinum.
„Ég verð að setja krakkana mína í fótbolta," skrifaði leikstjórnandinn Isaiah Thomas.
Insane https://t.co/B8LQpmZl5e
— Kevin Durant (@KDTrey5) June 30, 2021
Athugasemdir