Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 03. júlí 2021 11:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þrír leikmenn yfirgefa Ólafsvík (Staðfest) - Alex Bergmann í ÍR
Lengjudeildin
Sigurður Dagsson og Alex Bergmann. Sigurður gekk í raðir ÍR á fimmtudag á láni frá Val.
Sigurður Dagsson og Alex Bergmann. Sigurður gekk í raðir ÍR á fimmtudag á láni frá Val.
Mynd: ÍR
Í gær yfirgáfu fjórir leikmenn herbúðir Víkings í Ólafsvík. Þá hætti Gunnar Einarsson sem þjálfari liðsins en Víkingur er í botnsæti Lengjudeildarinnar.

Í gær sögðum við frá því að Ingibergur Kort Sigurðsson væri genginn í raðir Vatnalilja. Þá fóru þrír lánsmenn til baka í félögin sín.

Hlynur Sævar Jónsson er kominn til ÍA, Þorleifur Úlfarsson er kominn í Breiðablik og Alex Bergmann Arnarsson var lánaður í ÍR frá Víkingi Reykjavík eftir að hafa verið á láni í Ólafsvík.

Alex Bergmann er löglegur með ÍR gegn KF í leik liðanna í 2. deild á morgun.

Alex er fæddur árið 1999 og kom við sögu í sex leikjum með Ólsurum. Hlynur er sömuleiðis fæddur árið 1999 og kom við sögu í ellefu leikjum og skoraði þrjú mörk. Þorleifur er fæddur árið 2000 og kom við sögu í átta leikjum og skoraði þrjú mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner