Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 03. júlí 2021 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þröstur Mikael aftur í Dalvík/Reyni (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þröstur Mikael Jónason er mættur á láni í Dalvík/Reyni frá Grindavík. Lánssamningurinn gildir út tímabilið.

Þröstur gekk í raðir Grindavíkur frá einmitt Dalvík/Reyni í vetur og hafði komið við sögu í fimm leikjum í upphafi móts.

Þröstur verður með Dalvík/Reyni í leik liðsins gegn Elliða í 3. deildinni í dag.

„Dalvíkingurinn grjótharði Þröstur Mikael Jónasson hefur skrifað undir samning við Dalvík/Reyni út tímabilið. Þröstur kemur á láni frá Grindavík og mun hann taka þátt í leik okkar gegn Elliða á morgun.
Velkominn heim, Þröstur,"
segir í Facebook-færslu D/R.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner