Nik: Seinni hálfleikur var hræðilegur

Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ánægður með að okkur hafi tekist að halda hreinu aftur. Ég var mjög sáttur með fyrri hálfleikinn, seinni hálfleikur var hræðilegur“ sagði Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, eftir 3-0 sigur gegn Selfossi á heimavelli fyrr í kvöld.
„Við vorum að hreyfa boltann, finna svæði, bjuggum til mörg færi og komum okkur í góðar stöður. Í seinni hálfleik bökkuðum við og vorum að taka slæmar ákvarðanir í réttum svæðum. Við vorum að þvinga sendingar og við vorum kærulausar. Sem betur fer vorum við góðar varnarlega en seinni hálfleikur var ekki nægilega góður.“
Eitthvað er um meiðsli í Þróttaraliðinu og aðspurður hver staðan er á hópnum segir hann:
„Olla verður frá fram í ágúst og Ingunn eitthvað svipað en allir aðrir eru góðir. Við þurftum að gera einhverjar skiptingar út af bæði gulum spjöldum og einhverju vægum meiðslum en ég var ánægður með varamennina sem komu inn. Þær gáfu okkur auka orku sem mér fannst við þurfa og hjálpuðu við að sigla þessu heim.“
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.





