03.07.26 - 22:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
2. deild: Viðar Örn með þrennu - Dramatík í Mosó

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Viðar Örn Kjartansson var hetja Selfyssinga þegar þeir unnu KFG á útivelli í kvöld.
Viðar Örn kom liðinu yfir en Djordje Biberdzic jafnaði metin með marki úr víti. Viðar Örn endurheimti forystuna fyrir Selfoss undir lok fyrri hálfleiks.
Már Hallgrímsson jafnaði metin strax í upphafi seinni hálfleiks en Viðar Örn tryggði Selfyssingum sigurinn með sínu þriðja marki og þriðja marki Selfyssinga. Hann hefur skorað níu mörk í átta leikjum.
Það var Dramatík þegar Hvíti riddarinn fékk Dalvík/Reyni í heimsókn í Mosfellsbæ. Gestirnir náðu tveggja marka forystu en heimamenn náðu að jafna með sjálfsmarki frá Þresti Mikael Jónassyni. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði í rétt mark undir lokin og bjargaði stigi fyrir Dalvík/Reyni.
Dalvík/Reynir er í 2. sæti með 20 stig, þremur stigum á eftir toppliði Hauka. Dalvík/Reynir er taplaust í síðustu sex leikjum. Selfoss er í 3. sæti með 19 stig, Hvíti riddarinn er í 8. sæti með 12 stig eins og KFG sem er í 9. sæti.

KFG 2 - 3 Selfoss
0-1 Viðar Örn Kjartansson ('33 )
1-1 Djordje Biberdzic ('42 , víti)
1-2 Viðar Örn Kjartansson ('44 )
2-2 Már Hallgrímsson ('47 )
2-3 Viðar Örn Kjartansson ('67 )
Hvíti riddarinn 3 - 3 Dalvík/Reynir
0-1 Áki Sölvason ('6 )
0-2 Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa ('17 )
1-2 Rikharður Smári Gröndal ('45 )
2-2 Patrekur Orri Guðjónsson ('63 )
3-2 Þröstur Mikael Jónasson ('73 , sjálfsmark)
3-3 Þröstur Mikael Jónasson ('90 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 13 | +18 | 29 |
| 2 | Selfoss | 13 | +3 | 23 |
| 3 | Kári | 13 | +13 | 21 |
| 4 | Kormákur/Hvöt | 13 | +14 | 20 |
| 5 | Dalvík/Reynir | 13 | +1 | 20 |
| 6 | Fjölnir | 13 | +4 | 18 |
| 7 | Víkingur Ó. | 13 | -5 | 18 |
| 8 | KFA | 13 | +4 | 14 |
| 9 | Magni | 13 | -17 | 14 |
| 10 | Þróttur V. | 13 | -5 | 13 |
| 11 | Hvíti riddarinn | 13 | -6 | 13 |
| 12 | KFG | 13 | -24 | 12 |