Fotbolti.net
03.07.26 - 21:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Jafntefli í fjörugum leik í Kaplakrika

Besta deildin: Jafntefli í fjörugum leik í Kaplakrika
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH 2 - 2 Stjarnan
1-0 Adolf Daði Birgisson ('10 )
1-1 Sindri Þór Ingimarsson ('14 )
1-2 Örvar Eggertsson ('36 )
2-2 Ísak Óli Ólafsson ('42 )
Lestu um leikinn
FH fékk Stjörnuna í heimsókn í 13. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. FH-ingar náðu forystunni snemma leiks. Stjörnumaðurinn fyrrverandi Adolf Daði Birgisson skoraði eftir frábæran undirbúning Kjartans Kára Halldórssonar.

Stjörnumenn voru ekki lengi að svara því Sindri Þór Ingimarsson jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar þegar hann skallaði boltann í netið.

Benedikt Warén var nálægt því að koma Stjörnunni yfir en Jökull Andrésson varði vel frá honum. Stuttu síðar skoraði hins vegar Örvar Eggertsson með laglegri bakfallsspyrnu.

Aftur kom jöfnunarmark stuttu síðar en Ísak Óli Ólafsson skoraði með skalla eftir hornspyrnu og jafnaði metin fyrir FH.

Emil Atlason fékk úrvalsfæri til að koma Stjörnunni yfir eftir rúmlega klukkutíma leik en boltinn beint á Jökul. Hann fékk annað tækifæri stuttu síðar en Jökull varði mjög vel.

Stjörnumenn voru síðan hársbreidd frá því að skora beint úr horni en boltinn fór af Grétari Snæ Gunnarssyni og í slá og FH-ingar komu boltanum frá.

Kjartan Kári slapp í gegn undir lokin en Árni Snær Ólafsson varði vel frá honum.

Nær komust liðin ekki og jafntefli niðurstaðan. FH er í 11. sæti með 8 stig en Stjarnan í 6. sæti með 15 stig.
Besta deildin: Jafntefli í fjörugum leik í Kaplakrika
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.15+3840
2KR16+2235
3Fram15+1333
4Breiðablik15+826
5Keflavík15-419
6Valur16-619
7ÍBV15-716
8Stjarnan15-815
9ÍA15-1215
10KA15-814
11FH15-1112
12Þór15-2511
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.