HM: Ástralía gerði misheppnuð markvarðaskipti fyrir vítakeppnina

Egyptaland komst áfram eftir sigur í vítakeppni.

Mynd: EPA

Mathew Ryan var settur í mark Ástralíu í lok framlengingar í stað Patrick Beach. Ryan varði hinsvegar ekki spyrnu í vítakeppninni.

Ástralía 1 - 1 Egyptaland (2-4 í vítakeppni)
0-1 Emam Ashour ('13 )
1-1 Mohamed Hany ('55 , sjálfsmark)
0-1 Emam Ashour ('13 )
1-1 Mohamed Hany ('55 , sjálfsmark)
Egyptaland er komið áfram í 16-liða úrslit á HM eftir sigur á Ástralíu eftir vítaspyrnukeppni. Þetta er í fyrsta sinn sem Egyptaland vinnur leik í útsláttarkeppni.
Cristian Volpato var nálægt því að koma Ástralíu yfir snemma leiks en skotið rétt yfir. Eygyptaland náði forystunni eftir tæplega stundafjórðung. Emam Ashour skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá Karim Hafez.
Ástralía varð fyrir áfalli þar sem Jordan Bos þurfti að fara af velli vegna meiðsla í hálfleik.
Omar Marmoush fékk dauðafæri strax í upphafi seinni hálfleiks en Kai Trewin náði að trufla hann og skotið fór framhjá.
Ástralía jafnaði metin eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik þegar Mohamed Heny varð fyrir því óláni að skalla boltann í eigið net. Þetta var annað sjálfsmarkið hans á mótinu. Það hafa verið skoruð 13 sjálfsmörk á mótinu til þessa en aldrei hafa sjálfsmörkin verið jafn mörg á einu móti.
Markvörðurinn Patrick Beach kom í veg fyrir sigur Egyptalands í blálokin þegar hann varði skalla frá Ramy Rabia stórkostlega.
Hvorugu liðinu tókst að skora í framlengingunni og grípa þurfti því til vítaspyrnukeppni. Beach fékk ekki tækifæri til að vera hetja Ástralíu þar því hann var tekinn af velli fyrir Mathew Ryan, sem er þekktur vítabani, rétt fyrir vítakeppnina.
Ryan tókst hins vegar ekki að verja víti. Ástralir klikkuðu á tveimur vítum en Egyptar skoruðu úr öllum fjórum vítunum sínum og eru komnir í 16-liða úrslit þar sem liðið mætir Argentínu eða Grænhöfðaeyjum.
Vítaspyrnukeppnin
0-0 Harry Souttar skaut yfir
0-1 Mahmoud Saber skoraði
1-1 Jackson Irvine skoraði
1-2 Ramy Rabia skoraði
2-2 Awer Mabil skoraði
2-3 Mohamed Salah skoraði
2-3 Lucas Herrington skaut í slá
2-4 Abdel Maguid Hossam skoraði