Leiktímanum ekki breytt - Mikil gæsla við hótel enska liðsins

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ljóst er að leikur Mexíkó og Englands í 16-liða úrslitum HM verður ekki færður. Enskir fjölmiðlar greindu frá því í kvöld að það væri möguleiki á því að hann gæti verið færður vegna veðurs.
Leikurinn var settur á miðnætti á sunnudagskvöld (aðfaranótt mánudags) en FIFA íhugaði að færa hann fram til klukkan sex á sunnudagskvöldið.
Leikurinn var settur á miðnætti á sunnudagskvöld (aðfaranótt mánudags) en FIFA íhugaði að færa hann fram til klukkan sex á sunnudagskvöldið.

TENGT EFNI
Gæti þurft að flýta leik Mexíkó og Englands
Báðar þjóðir komu að fjöllum þegar þessar fréttir fóru af stað og voru mjög ósátt. Það fóru viðræður af stað milli þjóðanna og FIFA og niðurstaðan er sú að leikurinn mun fara fram á upprunalegum leiktíma. FIFA mun þó áfram fylgjast með veðurspánni.
Þá hefur enska sambandið gert ráðstafanir fyrir leikinn. Það er mikil gæsla í kringum hótel landsliðsins til að koma í veg fyrir að mexíkóskir stuðningsmenn trufli svefninn.
Leikmenn Ekvador urðu fyrir barðinu á þeim fyrir leik liðanna sem Mexíkó vann aðfaranótt þriðjudags í 32-liða úrslitum.

PROTECCIÓN TOTAL PARA INGLATERRA ????????????????????????????????
— FOX Sports MX (@FOXSportsMX) July 3, 2026
Así luce el hotel donde se concentrará la Selección de Inglaterra de cara a su duelo ante México, con una fuerte presencia de elementos de seguridad. ????
????: @David_EG#LaCopaxFSMX pic.twitter.com/uDb8P0dL9x