Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 03. ágúst 2022 19:57
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Berglind og Svava komu inn af bekknum í stórsigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arna-Bjornar 0 - 6 Brann
0-1 Lie Nora ('6)
0-2 T. Asland ('22)
0-3 S. Gaupset ('32)
0-4 M. Brochmann ('39)
0-5 R. Engesvik ('47)
0-6 T. Asland ('63)

Svava Rós Guðmundsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir byrjuðu á bekknum er Brann heimsótti Arna-Bjornar í norska boltanum í dag.

Svava Rós og Berglind BJörg voru báðar með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu og voru að spila sinn fyrsta leik síðan í riðlakeppninni.

Þær komu inn í stöðunni 0-5 fyrir Brann og eftirleikurinn auðveldur. Brann trónir á toppi deildarinnar með 40 stig eftir 15 umferðir, fimm stigum meira en Rosenborg sem situr í öðru sæti.


Athugasemdir
banner
banner
banner