03.08.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Draumabyrjun hjá „íslenska Haaland" hjá Dortmund

Mynd: Aðsend

Mynd: Aðsend
Hinn 16 ára gamli Bjarki Hrafn Garðarsson fékk draumabyrjun hjá unglingaliði Dortmund en hann gekk til liðs við félagið frá Stjörnunni á dögunum.

TENGT EFNI
Íslensku ungstirni líkt við Haaland - „Finnst ég geta gert meira með bolta í löppunum en hann"
Liðið mætti Holstein Kiel í bikarkeppni U19 en tapaði 4-3. Bjarki Hrafn gerði sér lítið fyrir og skoraði öll þrjú mörk Dortmund.
Eftir að hann var kynntur hjá Dortmund var honum líkt við Norðmanninn Erling Haaland en þeir eiga það sameiginlegt að vera hávaxnir og örvfættir. Haaland braust fram á stóra sviðið hjá Dortmund þar sem hann skoraði 86 mörk í 89 leikjum.
Hann færði sig síðan til Man City og er að margra mati einn besti, ef ekki besti framherji heims.