Þorkell Þráinsson gerði eina mark leiksins er Ægir lagði Hött/Hugin að velli í 2. deild karla í dag.
Þorkell skoraði strax á 2. mínútu leiksins og er Ægir áfram í þriðja sæti án þess að eiga möguleika á að komast upp um deild. Höttur/Huginn er í efri hlutanum.
Sveinn Gísli Þorkelsson var þá hetja Breiðhyltinga í flottum endurkomusigri gegn Völsungi þar sem liðin skiptust á að taka forystuna.
ÍR komst yfir snemma leiks en Húsvíkingar leiddu í hálfleik. Það var Sveinn Gísli sem skoraði tvennu í upphafi síðari hálfleiks til að snúa stöðunni við.
Bæði lið eru í efri hluta deildarinnar.
Höttur/Huginn 0 - 1 Ægir
0-1 Þorkell Þráinsson ('2 )
ÍR 3 - 2 Völsungur
1-0 Alexander Kostic ('11 )
1-1 Áki Sölvason ('24 )
1-2 Jakob Héðinn Róbertsson ('32 )
2-2 Sveinn Gísli Þorkelsson ('53 )
3-2 Sveinn Gísli Þorkelsson ('56 )
Rautt spjald: Adolf Bitegeko, Völsungur ('73)

L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |