Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 03. september 2022 13:46
Aksentije Milisic
Skotland: Celtic valtaði yfir Rangers í Old Firm slagnum
Mynd: EPA

Celtic 4-0 Rangers
1-0 Liel Abada ('8)
2-0 João Filipe ('32)
3-0 Liel Abada ('40)
4-0 David Turnbull ('90)


Old Firm slagurinn var á dagskrá í dag en þá mættust Celtic og Rangers á Celtic Park í sjöttu umferð skosku deildarinnar.

Fyrir leikinn í dag var Celtic með tveggja stiga forystu á Rangers og tókst liðinu að auka sú forystu í fimm stig.

Heimamenn völtuðu yfir gestina en staðan í hálfleik var 3-0 fyrir Celtic. Liel Abada gerði tvennu í fyrri hálfleiknum fyrir Celtic.

Síðari hálfleikurinn var rólegri en Rangers tóks ekki að koma sér inn í leikinn. Það var síðan David Turnbull sem stráði salti í sárin með marki á lokamínutu leiksins.

Bæði lið verða í eldlínunni í Meistaradeild Evrópu í vikunni. Celtic fær Real Madrid í heimsókn en Rangers fer til Hollands og mætir Ajax.


Athugasemdir
banner
banner