Fotbolti.net
03.09.23 - 17:19
Hafliði Breiðfjörð

Arnar ósáttur: Skil ekki Klöru og á hvaða vegferð KSÍ er

Auglýsing
Arnar Grétarsson er ósáttur við að Hólmar Örn hafi verið í leikbanni í dag og að Arnar Gunnlaugsson hafi fjarstýrt liði Víkings í leikbanni.

Arnar Grétarsson er ósáttur við að Hólmar Örn hafi verið í leikbanni í dag og að Arnar Gunnlaugsson hafi fjarstýrt liði Víkings í leikbanni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er enginn leikur í þessari deild auðveldur en mér fannst frammistaðan verðskulda þrjú stig og vel það," sagði Arnar Grétarsson þjálfari Vals eftir 4 - 1 sigur á HK í Bestu-deild karla í dag.

„Þetta voru ekkert auðveldar aðstæður, mikill vindur og sem gerði mönnum alltaf erfitt fyrir. Það sem vindurinn gerði líka er að þegar við spilum á gervigrasi viljum við frekar spila á því blautu en það þornar fljótt og þá verður leikurinnn aðeins hægari."

„Mér fannst við byrja vel og komast sanngjarnt yfir og hefðum getað haft stærra forskot í hálfleik. Þegar við byrjum seinni hálfleikinn og skorum þetta mikilvæga þriðja mark. Það drap leikinn því það var klárt að HK ætlaði að koma sterkt inn í seinni hálfleik með vindinn aðeins með sér. En um leið og við skoruðum þriðja markið var leikurinn svolítið búinn."

Arnar ræðir í viðtalinu um það sem hann sagði í viðtali eftir tapið gegn FH um síðustu helgi, að leikmenn hafi verið að henda inn handklæðinu eftir þriðja markið gegn Víkingi og FH í síðustu tveimur leikjum en hlusta má á þá umræðu í spilaranum að ofan.

Hólmar Örn Eyjólfsson tók út leikbann í dag, sem hann fékk því Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ vísaði atviki úr Víkingsleiknum til aganefndar sem dæmdi hann eftir myndbandsupptöku.

„Mér finnst ótrúlegt að fréttamenn skuli ekki ræða hvernig KSÍ vinnur, hvernig Klara Bjartmarz vinnur," sagði Arnar.

„Ég á ekki til aukatekið orð. Ég hélt það væri dæmt eftirá þegar menn væru að meiða, þegar það væri ásetningur að meiða. Það sáu það allir og við sáum það í dag líka að það gerist trekk í trekk að það eru blokkeringar og menn eru að ýta. Jú, hann fer með lófann í andlitið en menn sjá alveg að hann er ekki að sækja í eitthvað. Það er keyrt inn í hann og hann er að stoppa hann. Ég skil ekki á hvaða vegferð KSÍ er. Því miður, ég skil það ekki. Ég skil ekki Klöru, ég veit ekki hvað hún er að gera þarna og mér finnst þetta stórskrítið. Ef þetta er línan þá geturðu tekið ansi mörg atriði í hverjum einasta leik. Mér finnst þetta sorglegt en ekkert vandamál," hélt hann áfram.

Annað mál sem tengist Val er enn í vinnslu hjá aganefnd KSÍ, því Valur kærði að Arnar Gunnlaugsson fjarstýrði liði sínu í gegnum síma á meðan hann var í leikbanni í leik liðanna.

„Ég hef ekkert um það að segja, ég gæti spurt þig til baka hvort reglurnar séu ekki skýrar hvað þú mátt gera þegar þú ert búinn að fá rautt spjald," sagði Arnar en í kæru Vals er meðal annars óskað eftir að úrslitum leiksins verði snúið við.

Þú vilt fá þrjú stig út úr þessum leik? - „Nei, mér finnst það ekki skipta öllu máli. Ég vil bara fá á hreint hvað má. Ég var í banni í fyrra í ansi mörgum leikjum. Ég vissi alveg hvað mátti, klukkutíma fyrir leik þar til leikurinn var flautaður af máttu ekki vera nein afskipti við bekkinn. Það er alveg skýrt!"

Tókst þú ekki upp símann og ekki neitt? - „Nei nei. Það var ekkert svoleiðis. Ég skil ekki afhverju þið blaðamenn fjallið ekki um þetta mál. Þið tiplið á tánum í kringum það, það er bara þannig. Mér finnst það líka sorglegt. Þetta er ekki spurning um þessi þrjú stig, það skiptir engu máli. Heldur bara hvað má og hvað má ekki, er þetta það sem við viljum, viljum við hafa þetta svona? Að það sé engin refsing þegar leikmaður eða þjálfari fer í bann? Erum við komin þangað?"

„Þetta er ekki spurning hvort Valur séu sárir yfir að hafa tapað. Við töpuðum þeim leik og ekkert að því. Ef þetta er normið þá vita það allir, og eftir 2-3 ár þegar það er úrslitaleikur um 150 milljónir og annar þjálfarinn í banni. Heldurðu að hann muni virða það? Ég bara spyr?

Þú myndir sjálfur breyta vinnubrögðum ef þetta má? - „Alveg 100%, ég myndi bara vera í beinu sambandi. Refsingin er kannski bara 100 þúsund kall eða 150. Þá er bara verið að segja mönnum að þetta skipti bara ekki máli."

Viðtalið má sjá í heild í spilaranum að ofan.

Klara Bjartmarz.

Klara Bjartmarz.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hólmar Örn Eyjólfsson.

Hólmar Örn Eyjólfsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.