Fotbolti.net
03.09.26 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

Heimsmeistari leggur landsliðsskóna á hilluna

Heimsmeistari leggur landsliðsskóna á hilluna
Canon

Mynd: EPA

Bakvörðurinn fjölhæfi Marcos Llorente hefur lagt landsliðsskóna á hilluna aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa orðið heimsmeistari með Spáni.
Spánverjar kátir: Hef þurft að éta mikinn skít
TENGT EFNI

Spánverjar kátir: Hef þurft að éta mikinn skít

Llorente lék tvo heila leiki á HM og kom við sögu í undanúrslitunum gegn Frakklandi. Hann er 31 árs gamall og með eitt ár eftir af samningi hjá Atlético Madrid.

„Ég hef ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna þrátt fyrir að vera ennþá ungur. Þetta er persónuleg ákvörðun sem ég hef hugsað mikið um og kemur frá hjartanu. Það hefur verið heiður að spila fyrir landið mitt," segir Llorente, sem lék 27 landsleiki á landsliðsferlinum sem hófst 2020. Þar áður hafði hann spilað 13 leiki fyrir yngri landsliðin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.