Fotbolti.net
03.09.26 - 23:57
Ívan Guðjón Baldursson

Rúmlega 7,2 milljarðar í nýja leikmenn

Rúmlega 7,2 milljarðar í nýja leikmenn
Canon

Mynd: Man City

Félagaskiptagluggi sumarsins var gríðarlega fjörugur og voru ýmis eyðslumet slegin. Tölurnar geta enn hækkað þar sem glugginn er enn opinn í Tyrklandi og Sádi-Arabíu.
20 dýrustu leikmenn sumargluggans - Skipti um lið og nafn
TENGT EFNI

20 dýrustu leikmenn sumargluggans - Skipti um lið og nafn

Eyðslumet fótboltaheimsins eru slegin á nánast hverju ári og hækkaði heildareyðsla félaga um meira en 1,5 prósent á milli ára. Í heildina eyddu félög víða um heim rúmlega 7,2 milljörðum punda í nýja leikmenn, sem er nýtt met.

Heildarfjöldi félagaskipta hækkaði þá um sex prósent á milli ára. 12,575 leikmenn hafa skipt um félag í sumar, sem er líka met.

Félög frá Englandi keyptu nýja leikmenn fyrir langmestan pening, eða 2,2 milljarða punda. Ítölsk félög eru í öðru sæti en þau notuðu 810 milljónir í nýja leikmenn, sem er um 37% af upphæðinni sem ensku félagsliðin notuðu.

Spænsk félagslið notuðu 695 milljónir punda, þýsk félagslið 668 milljónir og frönsk 474 milljónir.

Frönsku félagsliðin högnuðust gríðarlega mikið á leikmannaviðskiptum þar sem þau seldu leikmenn fyrir 1,25 milljarð. Ensk félagslið seldu leikmenn fyrir 1 milljarð.

Til samanburðar seldu þýsk félög leikmenn fyrir 725 milljónir, spænsk félög fyrir 571 milljón og portúgölsk fyrir 474 milljónir.

Í kvennaboltanum voru öll eyðslumet slegin. Yfir 1400 leikmenn skiptu um félög fyrir um 22 milljónir punda í heildina, sem er meira en tvöfalt hærri upphæð heldur en í fyrrasumar.
Rúmlega 7,2 milljarðar í nýja leikmenn
Canon

Mynd: Chelsea

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.