03.09.26 - 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Þegar hann er í þessum gír þá á hann náttúrulega ekki að vera spila á Íslandi"

Gjörsamlega magnaður gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eins og klettur í vörninni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gjörsamlega magnaður gegn KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Fyrir 34 ára miðvörð var þetta á köflum eins og spólað hefði verið aftur í tímann," skrifaði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson m.a. um Oliver Ekroth, fyrirliða Víkings, í grein hér á Fótbolti.net þar sem rýnt var í gögnin eftir leik KR og Víkings í vikunni.
Sænski miðvörðurinn náði boltanum 28 sinnum af andstæðingnum eftir að Víkingur hafði misst boltann í leiknum. Það er persónulegt met hjá Ekroth í Bestu deildinni en hann var maður leiksins.

TENGT EFNI
Þeir stálu senunni í risaleiknum á Meistaravöllum
Fótbolti.net ræddi við Kára Árnason í dag en hann var í vörn landsliðsins sem fór á EM og HM og er yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.
„Ég er sammála því að þetta var hans besta frammistaða í svolítið langan tíma. Oliver hefur reynst okkur gríðarlega vel, það vita allir hvað hann getur. En stundum, og ég þekki það af eigin skinni, þá geta hlutirnir orðið of venjulegir, þá verða menn svolítið sjálfsánægðir (e. complacent). Ég varð sjálfur þannig á mínum ferli með félagsliðum, en ég gat alltaf hækkað levelið þegar alvöru leikir komu. Hann er pínu þannig, þegar hann er í þessum gír þá á hann náttúrulega ekki að vera spila á Íslandi, hann er bara það góður. Hann var svo sannarlega frábær og yfirburðarmaður á vellinum fannst mér - ásamt nokkrum öðrum Víkingum," segir Kári.
Ekroth er með skráðan samning út næsta ár en síðasta vetur voru einhverjar sögur um að mögulega væri heimför til Svíþjóðar í kortunum hjá miðverðinum öfluga. Er eitthvað samtal um að hann vilji fara?
„Það er ekkert sem hefur verið rætt. En maður skilur alveg að einhverjir af erlendu leikmönnunum vilji einhvern tímann fara heim, en ég hef ekki rætt það við hann né umboðsmanninn hans. Ég reikna með því að hann verði áfram hjá okkur," segir Kári.
Ekroth er 34 ára og kom til Víkings frá Degerfors eftir tímabilið 2021 í Svíþjóð. Hann hefur tvívegis verið valinn í lið ársins í Bestu deildinni hér á Fótbolti.net. Hann á að baki 26 leiki í sænsku úrvalsdeildinni á sínum ferli og 80 í næstefstu deild. Frá komu sinni hefur hann spilað 110 leiki í Bestu deildinni með Víkingum, unnið Íslandsmeistaratitilinn tvisvar sinnum og bikarinn tisvar.

Kári og Ekroth saman eftir að Víkingur varð bikarmeistari 2023.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir