03.10.18 - 08:30
Hafliði Breiðfjörð
Steve Bruce um kálhausinn: Engin virðing borin fyrir neinum

Steve Bruce.

Mynd: Getty Images

Steve Bruce.

Mynd: Getty Images
Eins og við sögðum frá í gær lenti Steve Bruce stjóri Aston Villa í heldur óvenjulegu atviki í gærkvöldi þegar stuðningsmaður liðsins grýtti kálhaus í hann í jafnteflisleiknum við Preston.
Villa hefði farið upp um sjö sæti með sigri og Birkir Bjarnason landsliðsmaður Íslands var felldur í teignum í lokin og dæmd vítaspyrna sem var varin svo lokaniðurstaðan varð 3-3 jafntefli.
Bruce er ekki sáttur við stuðningsmennina sem honum finnst efast um allar sínar aðgerðir á tímabilinu og þegar talið barst að kálhausnum var honum nóg boðið.
„Þessi náungi sem á í hlut...," byrjaði Bruce mikið niðri fyrir. „Því miður lýsir þetta samfélaginu okkar í dag. Það er enginn virðing fyrir neinum. Mér finnst þetta allt svo mikil vanvirðing."
„Það eina sem ég er alltaf ákveðinn í að gera er að bretta upp ermar og ganga til verka. Ég mun alltaf gera mitt besta."
Villa er í 12. sæti deildarinnar og hefur aðeins unnið einn af síðustu níu leikjum liðsins í deildinni.