HK 0 - 0 Grindavík
HK og Grindavík skildu jöfn þegar liðin áttust við í toppslag í 2. deild kvenna í Kórnum í gærkvöldi.
HK-ingar voru að leika sinn síðasta deildarleik á tímabilinu og hefðu með sigri getað tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Grindavík er hins vegar í ágætri stöðu núna.
Grindavík á tvo leiki eftir og er fimm stigum á eftir HK. Fjarðab/Höttur/Leiknir kemur í þriðja sæti með 26 stig, fjórum stigum meira en HK. Fjarðab/Höttur/Leiknir á eftir að spila þrjá deildarleiki.
Grindavík og Fjarðab/Höttur/Leiknir eiga ekki eftir að mætast innbyrðis og Fjarðab/Höttur/Leiknir verður því að treysta á að Grindvíkingar misstígi sig í síðustu tveimur leikjum sínum. Með því að vinna síðustu þrjá leiki sína mun Fjarðab/Höttur/Leiknir jafna HK að stigum, en það verður mjög erfitt fyrir þær að ná Kópavogsliðinu í markatölu. Með því að vinna síðustu tvo leiki sína fer Grindavík fyrir ofan HK, með einu stigi meira.
Hér að neðan má sjá stöðuna í deildinni.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir