banner
   sun 03. október 2021 16:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hemmi Hreiðars ráðinn þjálfari ÍBV (Staðfest)
Mynd: ibvsport.is
Hermann Hreiðarsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV sem leikur í efstu deild á næstu leiktíð. Hann skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á ibvsport.is

Hermann gerði frábæra hluti með Þrótti Vogum í sumar en hann kom liðinu upp í næst efstu deild með sigri í 2. deild.

Hann hætti með liðið á dögunum en það voru sögur á kreiki um að hann væri að fara taka við ÍBV sem er orðin staðreynd.

Fréttatilkynning ÍBV:

„Hermann Hreiðarsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla. Hemma þarf vart að kynna, enda þjálfað liðið áður ásamt því að spila fjölda leikja fyrir ÍBV og íslenska landsliðið. Hemmi skrifar undir 3ja ára samning og eru miklar væntingar bundnar við ráðningu hans. Til gamans má geta að Hemmi flytur með fjölskylduna til Eyja í upphafi næsta árs og er mikil tilhlökkun hjá öllum fyrir þessu samstarfi. Velkominn heim Hemmi og áfram ÍBV, alltaf, alls staðar!"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner