03.10.24 - 15:56
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Tottenham í Búdapest: Táningar fá tækifæri

Hinn nítján ára gamli Will Lankshear.

Mynd: Getty Images

Mikey Moore.

Mynd: Getty Images

Hinn nítján ára gamli Will Lankshear.

Mynd: Getty Images
Meðal fjölmargra Evrópuleikja í dag er viðureign Ferencváros og Tottenham í Evrópudeildinni en leikurinn hefst klukkan 16:45.
Ange Postecoglou notar hópinn hjá sér og gerir alls sjö breytingar á byrjunarliðinu frá 3-0 sigrinum gegn Manchester United síðasta sunnudag.
Hinn nítján ára gamli sóknaramaður Will Lankshear leikur sinn fyrsta aðalliðsleik og Mikey Moore, sem er sautján ára vængmaður, er í fyrsta sinn í byrjunarliðinu en hann hefur fimm sinnum komið inn sem varamaður.
Varamannabekkurinn er hlaðinn af stórum nöfnum; Micky van de Ven, Rodrigo Bentancur, James Maddison, Dejan Kulusevski, Brennan Johnson og Dominic Solanke eru allir klárir í slaginn ef á þarf að halda.

TENGT EFNI
Evrópudeildin í dag - Man Utd í Portúgal
Byrjunarlið Tottenham: Vicario, Gray, Davies, Romero, Porro, Bissouma, Matar Sarr, Bergvall, Moore, Werner, Lankshear.
(Varamenn: Forster, Austin, Dorrington, Van de Ven, Cassanova, Bentancur, Maddison, Kulusevski, Ajayi, Johnson, Solanke)