03.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sporting rekur vinsælan stjóra til að ráða Fonseca

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Stór hluti stuðningsmanna Sporting CP er hissa á ákvörðun stjórnar félagsins að reka Rui Borges úr þjálfarastarfinu til þess að ráða inn Paulo Fonseca.

TENGT EFNI
Fonseca snortinn yfir stuðningi lærisveina sinna
Borges hefur staðið sig gríðarlega vel við stjórnvölinn hjá Sporting en byrjunin á nýju tímabili hefur ekki verið nægilega góð. Liðið er með 21 stig úr 10 umferðum í portúgölsku deildinni - níu stigum á eftir ríkjandi meisturum Porto sem eiga fullt hús stiga.
Honum tókst að vinna portúgölsku deildina og báðar bikarkeppnirnar í landinu á einu og hálfu ári með Sporting, auk þess að koma liðinu óvænt í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð. Þar tapaði Sporting afar naumlega gegn ógnarsterku liði Arsenal, sem fór alla leið í úrslitaleik keppninnar auk þess að vinna ensku úrvalsdeildina.
Paulo Fonseca tekur við af Borges en hann er 53 ára gamall og er aðalþjálfari Lyon í dag. Sporting borgar um 3 milljónir evra til að leysa hann undan samningi þar.
Fonseca hefur áður stýrt Porto og Braga í heimalandinu, auk þess að hafa verið aðalþjálfari hjá AS Roma og AC Milan á Ítalíu. Hann hefur einnig stýrt Lille og Shakhtar Donetsk á ferlinum.
Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á félagaskiptin.